08.maí 2026
Fáein skilaboð með vorkveðju.
Kæru Korpúlfar
minnum við á lokun í Borgum næsta þriðjudag 12 maí vegna starfsdags starfsfólks.
Hjartans kveðja
Birna og Ríkharð.
24.apríl 2026
Gleðilegt sumar með sumargjöf.
Kæru Korpúlfar, þökkum ánægjulegan vetur og óskum ykkur alls hins besta í sumar.
Sumardagskráin okkar verður kynnt fljótlega, opnunartími í Borgum verður óbreyttur og vonumst til að sjá ykkur sem flest í sumar.
Við ætlum að fagna sumrinu saman á félagsfundinum næsta miðvikudag 29 apríl kl. 13:00 í Borgum. Sr. Sveinbjörn Bjarnason verður með erindi um sorg og sorgarviðbrögð,
sem á erindi til okkar allra, því enginn gengur í gengum lífið án áfalla. Þá mun Inga Dóra Björnsdóttir sem er að ljúka meistaranámi í félagsráðgjöf, kynna fyrir okkur mastersritgerð sína,
sem hún hefur varið við Háskóla Íslands. „Það er gott að vera þar sem gleðin býr, BORGIR, félags og menningarmiðstöð“. Og mun svara fyrirspurnum um verkefnið.
Korpusystkin munu að venju gleðja okkur með söng, en þau eru á fullu að undirbúa tónleika sem verða laugardaginn 16. maí í Grafravogskirkju.
Ríkharð Brynjólfsson formaður Korpúlfa mun síðan kynna fyrir okkur áhugaverðar staðreyndir um tölfræði Korpúlfa. Kaffi á könnunni í lok fundar.
Qigong með Þóru hefst síðan eftir fundinn kl. 16:30 í Borgum.
Stundvíslega kl. 19:15 sama dag 29.4. fer rúta frá Borgum með 40 Korpúlfa að sjá Ormstungu í Þjóðleikhúsinu. Leikhúsmiðarnir verða afhentir á miðvikudaginn 29.4. í Borgum.
Deginum eftir 30 apríl kl. 13:00 í Borgum, munu Karl G. Friðriksson og Sævar Kristinsson á vegum menningarnefndar kynna bók sína Síungir karlmenn. Bjóða upp á innsæi, innblástur og ráð.
Sumargjöfin í ár til Korpúlfa er ókeypis prufutími í stólajóga með Stefáni Atla jógakennara í dag, föstudaginn 24. apríl kl. 14:00 í Borgum. Eins og hefur verið auglýst.
Í framhaldinu frá 8. maí, mun hann bjóða upp á mánaðarnámskeið í jóga einu sinni í viku á krónur 5.000.- mánaðargjald.
Hvað er betra en að fara inn í sumarið með orku og hlýju í hjarta.
Ríkharð formaður Korpúlfa og Birna.
27. mars 2026
Spenandi tækifæri með ósk um gleðilega páska.
Kæru Korpúlfar
Af sérstökum ástæðum er eitt pláss laust í söguferð Korpúlfa um Vatnsnes 1 til 3 maí, og sjö pláss laus í sömu ferðina 15 til 17. maí, í fararstjórn Sigrúnar Valbergsdóttur, ferð sem byggð er á bókinni Náðarstund eftir Hannah Kent. Gist að Brekkulæk í Miðfirði. Þátttökuskráning og allar nánari upplýsingar liggja frammi í Borgum, en Sigrún kynnti þessa áhugaverðu ferð, fyrir okkur á svo skemmtilegan hátt í Borgum fyrr í vetur.
Þökkum góð viðbrögð við leikhúsferðinni 29 apríl á Ormstungu og minnum á að greiða miðaverðið inn á reikning Korpúlfa. Lagt verður af stað með rútu stundvíslega frá Borgum kl. 19:00 í Þjóðleikhúsið.
Þann sama dag 29.4. verður félagsfundur Korpúlfa og nánari dagskrá kynnt síðar.
Þá minnum við á glæsilegt páskabingó skemmtinefndar Korpúlfa kl. 13:00 næsta miðvikudag 1. apríl.
Boðið verður upp á einstaklingsmiðað tölvufærninámskeið 9 og 16 apríl í Borgum, þátttökuskráning liggur frammi.
Óskum öllum Korpúlfum nær og fjær hamingjuóskir með 28 ára afmælið 16. apríl 2026 og það er bjart framundan.
Gleðilega páskahátíð.
Ríkharð og Birna.
19. mars 2026
Félagsfundur 25. mars kl. 13:00 og fleira fróðlegt og skemmtilegt.
Heil og sæl
Stjórn Korpúlfa boðar til félagsfundar næsta miðvikudag 25. mars kl. 13:00 í Borgum
boðið verður upp á fræðslu um heimilisofbeldi og netsvik gagnvart eldra fólki.
Sérstakir gestir verða lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu og Eva Lind félagsráðgjafi í málefnum eldra fólks.
Korpusystkin undir stjórn Helga Hannessonar munu gleðja okkur með söng og
Margrét Eiríksdóttir flytja okkur skemmtisögu. Ríkharð Brynjólfsson verður fundarstjóri og kaffi á könnunni.
Vonumst til að sjá ykkur sem allra flest enda síðasti fundurinn á þessum vetri.
Tölvufærninámskeiðið með Sölva Steini og Ingibjörgu hefur gengið vel og því ákveðið að endurtaka það
fimmtudagana 9. apríl og 16. apríl kl. 9:00 til 11:00 í Borgum, þátttökugjald 500.- og þátttökulisti liggur frammi í Borgum.
Vekjum athygli á því að áhugi er fyrir því að endurvekja leiklistarhóp Korpúlfa, þátttökulisti liggur frammi í Borgum.
Einnig liggur frammi þátttökulisti á sjálfboðaliðadag í Heiðmörk 9. apríl.
Þá eru fáein sæti laus í söguferð Korpúlfa um Vatnsnes með Sigrúnu Valbergsdóttur 15 til 17. maí 2026.
Meðfylgjandi í viðhengi eru allar upplýsingar um væntanlega aðventuferð Korpúlfa til Wurzburg 2026
á vegum ferðanefndar Korpúlfa, þátttökulisti verður lagður fram næstu daga, fyrstir skrá fyrstir fá.
Með hjartans ósk um allt hið besta,
Ríkharð formaður Korpúlfa og Birna.
06. mars 2026
Áhugverðir viðburðir framundan
Kæru Korpúlfar
Þökkum viðburðaríka viku og góða þátttöku,
svo og útskriftahópi ljósmyndanámskeiðsins til hamingju.
Með hjartans ósk um gleðilega helgi,
Birna og Ríkharð Brynjólfsson formaður Korpúlfa.
22. febrúar 2026
Gleðifrétt hægt verður að kaupa heitan mat á ný.
Heil og sæl
Það er ánægjulegt að tilkynna að frá og með mánudeginum 2. mars 2026
verður hægt að panta á ný heitan hádegismat í Borgum og öðrum félagsmiðstöðvum.
Gerður hefur verið samningur við fyrirtækið Krydd og Kavíar um framleiðslu matar fyrir velferðasvið.
Fram að þeim tíma verður áfram hægt að kaupa léttan mat í Borgum eins og hefur verið í boði undanfarið.
Þökkum skilninginn, gleðilega Góu og stjórn Korpúlfa vonast eftir góðri mætingu á aðalfundinn á miðvikudaginn 25. feb. kl. 13:00 fín áður auglýst dagskrá og fínar veitingar í lok fundar.
Góð kveðja
Birna.
18. febrúar 2026
Gleðidagar framundan.
Kæru Korpúlfar
Takk fyrir gleðina í dag öskudagsskemmtun í Borgum undir stjórn Þóru, Amalíu og Ingibjargar.
Takk fyrir góða þátttöku í ferðunum sem eru framundan, ferðanefndin gerir allt til að ná niður biðlistum.
Takk fyrir góða þátttöku á ljósmyndanámskeiðinu í Borgum sem hefur gengið vel.
Takk fyrir skilning á þeirri breyttu matarþjónustu sem skyndilega breyttist hjá okkur og takk eldhússtelpurnar okkar fyrir góðu lausnir.
Vekjum athygli á aðalfundi Korpúlfa miðvikudaginn 25. febrúar kl. 13:00 í Borgum, venjulega aðalfundarstörf, tónlistardagskrá, sögulestur og glæsilegar veitingar.
Dansleikfimi með Auði Hörpu byrjaði 16. feb. og ný tímasetning er kl. 11:15 annan hvern mánudag, næst 23. febrúar kl. 11:15 í Borgum.
Fimmtudaginn 26. feb. kl. 13:00 mun Sævar Kristinsson heiðra okkur með nærveru sinni í Borgum og kynna bókina Síungir karlmenn,sem hann er höfundur að ásamt Karli G. Friðrikssyni. Viðburður á vegum menningarnefndar.
Miðvikudaginn 4. mars kl. 13:00 mun Karl Hinrik Jósafatsson Korpúlfur með meiru vera með myndasýningu og frásögn frá fjallgönguafreki sínu, verður nánar auglýst þegar nær dregur. Viðburður á vegum fræðslunefndar.
Fimmtudaginn 5. mars verður boðið til Hagyrðingarmóts Korpúlfa kl. 13:00 í Borgum undir stjórn Ragnars Inga Aðalsteinssonar.
Vonumst til að sem flestir taki þátt í gleðinni með okkur.
Theodór formaður Korpúlfa og Birna.
16. febrúar 2026
Aðalfundarboð Korpúlfa og tillaga uppstillingarnefndar
Aðalfundarboð Korpúlfa
Stjórn Korpúlfa boðar til aðalfundar Korpúlfa, félags eldri borgara í Grafarvogi.
Fundarstaður : Borgir, Spönginni 43, 112 R.
Fundartími : Miðvikudagurinn 25. febrúar 2026 kl. 13:00.
Vonumst til að sjá ykkur sem allra flest.
Stjórn Korpúlfa.
Uppstillingarnefnd Korpúlfa
Uppstillingarnefnd Korpúlfa, vegna kosninga formanns, stjórnar, varamanns í stjórn, nefnda og skoðunarmanna reikninga, á aðalfundi 25. febrúar 2026, sbr. 5. gr. laga félagsins, hefur lokið störfum. Tillögur nefndarinnar eru ritaðar hér fyrir neðan. Nöfn þeirra sem ekki sitja í stjórn eða nefnd á yfirstandandi starfsári eru skáletruð.
Formaður
Ríkharð Brynjólfsson
Stjórn
Margrét Sölvadóttir s. 693-4490
Jón Víglund Pétursson s. 895-7380
Rannveig Guðmundsdóttir
Haukur S. Harðarson s. 895-1689
Varamaður í stjórn
Margrét Eiríksdóttir s. 820-5672
Fræðslunefnd
Guðrún Þórðardóttir.
Kolbrún Ingólfsdóttir .
Sigurður Jóhannsson
Ferðanefnd
Sigríður H. MacEhern s. 696-3100
Jóna Þ. Vernharðsdóttir s. 699-6355
Sigmundur Stefánsson
Menningarnefnd
Ingibjörg Óskarsdóttir
Anna Sigríður Jensen
Sven Sigurðsson
Skemmtinefnd
Amalía Pálsdóttir
Vigfús Ólafsson
Ásdís M. Magnúsdóttir s. 694-3396
Guðrún Dúa Kristinsdóttir
Kristján G. Kristjánsson
Ólöf Björnsdóttir
Þorlákur Kjartansson
Skoðunarmenn reikninga
Hermann Guðmundsson
Ingi Sæmundsson
21. janúar 2026
19. janúar 2026
Áhugverð vika framundan.
Kæru Korpúlfar
Vekjum athygli á eftirfarandi með góðri kveðju :
Njótið vel og ánægjulegt hversu vel nýja árið 2026 fer af stað hjá okkur með góðri þátttöku í alla dagskráliði.
Theodór og Birna.
09. janúar 2026
Árið 2026 fer vel af stað hjá okkur.
Kæru Korpúlfar
Vekjum athygli á að
Með allra bestu nýárskveðju,
Theodór formaður Korpúlfa og Birna.
©2022 Korpúlfar - Spönginni 43, 112 Reykjavík - Vefstjóri Snæbjörn Kristjánsson